Dagsetning                       Tilvísun
4. október 1996                             752/96

 

Virðisaukaskattur húsfélags – skráning á virðisaukaskattsskrá eða skipting innskatts.

Vísað er til bréfs yðar dags. 23. ágúst sl. til skattstjórans í Reykjavík sem hann framsendi ríkisskattstjóra 6. sept. sl., þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvort skrá eigi húsfélag á virðisaukaskattsskrá.

Í bréfi yðar er spurt um hvort tiltekið húsfélag í eigu margra rekstaraðila geti fengið sjálfstætt virðisaukaskattsnúmer þannig að félagið innheimti virðisaukaskatt til viðbótar greiðslu hvers og eins húseiganda og nýti þá jafnframt innskattsfrádrátt. Ljóst er af bréfi yðar að húsfélagið var stofnað í þeim tilgangi einum að kaupa sameiginlega þjónustu vegna fasteignarinnar þar sem eignin var ekki fullkláruð.

Ekki verður séð að félagið eigi að vera á virðisaukaskattsskrá þar sem sýnt þykir að enginn virðisauki verður í rekstri félagsins heldur er hér einungis um að ræða dreifingu á kostnaði eigenda, þ.e. félagið er ekki skattskylt skv. 3. gr. sbr. og 5. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Hins vegar skal bent á að færsla á innskatti vegna sameiginlegra innkaupa tveggja eða fleiri rekstraraðila, sem einn sölureikningur er gefinn út fyrir, má byggjast á sameiginlegri greinargerð þar sem fram komi nafn og kennitala allra kaupenda, svo og skipting verðs og virðisaukaskatts. Í þessum tilvikum skal árita á frumrit sölureiknings hver varðveitir og ljósrit hans skal þá liggja fyrir í bókhaldi allra aðila ásamt greinargerð ef hún er gerð á sérstöku skjali.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir.