Dagsetning                       Tilvísun
30. júní 1998                            861/98

 

Virðisaukaskattur – lög nr. 80/1998 – Aðgangur að vegamannvirkjum

Hér með sendist yður, skattstjóri, ljósrit af lögum nr. 80/1998, um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

Lög nr. 80/1998 hafa einungis að geyma eina breytingu á lögunum. Með breytingunni er nýjum tölulið bætt við 2. mgr. 14. gr. virðisaukaskattslaga sem gerir að verkum að innheimta ber 14% virðisaukaskatt af aðgangi að vegamannvirkjum í stað 24,5% áður.

Lögin tóku gildi við birtingu sem var 24. júní sl.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir.