Dagsetning                     Tilvísun
7. feb. 1990                                  17/90

 

Virðisaukaskattur – nudd.

Vísað er til bréfs yðar, dags. 24. jan. sl., um virðisaukaskatt af nuddi.

Til svars erindinu skal tekið fram að nuddþjónusta er skattskyld til virðisaukaskatts samkvæmt meginreglu 2. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, en þar segir að skattskyldan nái til allrar vinnu og þjónustu, hverju nafni sem nefnist, sem ekki er sérstaklega undanþegin.

Ýmis heilbrigðisþjónusta er undanþegin virðisaukaskatti, sbr. l. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Beinlínis er tekið fram í ákvæðinu að lækningar og tannlækningar séu undanþegnar virðisaukaskatti, en jafnframt er „önnur eiginleg heilbrigðisþjónusta“ undanþegin. Við ákvörðun þess hvort tiltekin þjónusta falli undir undanþáguákvæðið verður starfsemin að mati ríkisskattstjóra að uppfylla eftirtalin skilyrði:

1. Um sé að ræða þjónustu heilbrigðisstéttar sem fellur undir lög nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, eða sérlög um heilbrigðismál.

2. Almennt sé þjónusta

a)     veitt einstaklingum á grundvelli tilvísunar frá lækni eða

b)     hún greidd af Tryggingastofnun ríkisins eða sjúkrasamlagi að hluta eða að fullu.

Sjúkranudd getur fallið undir framangreinda skilgreiningu, en almennt nudd er skattskylt· og skiptir ekki máli þótt nuddþjónustan sé veitt í tengslum við starfsemi heilsuræktarstöðvar.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Ólafur Ólafsson.