Dagsetning Tilvísun
22. feb. 1991 255/91
Virðisaukaskattur – þjónusta vegna spilakassa.
Ríkisskattstjóra hefur borist fyrirspurn um meðferð virðisaukaskatts af þjónustu vegna söfnunarkassa R. Af þessu tilefni vill ríkisskattstjóri taka fram eftirfarandi:
Samkvæmt 11. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt eru happdrætti og getraunastarfsemi undanþegin virðisaukaskatti. Söfnunarkassar (spilakassar) R eru taldir happdrætti í þessu sambandi. Í 4. mgr. 2. gr. laganna er tekið fram að undanþágur skv. 3. mgr. taki aðeins til. sölu eða afhendingar vinnu og þjónustu en ekki til virðisaukaskatts (innskatts) af aðföngum til hinnar undanþegnu starfsemi, sbr. 3. og 4. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. sömu laga.
Samkvæmt framangreindu innheimtir R ekki virðisaukaskatt af því fé sem safnast í umrædda kassa. Hins vegar ber R að greiða virðisaukaskatt við kaup á skattskyldri vöru og þjónustu vegna söfnunarkassanna. Dæmi um slíkar vörur og þjónustu má nefna:
- Kaup (innflutning) söfnunarkassa.
- Viðgerðir og varahlutir vegna söfnunarkassa.
- Þóknun fyrir aðstöðu undir söfnunarkassa (ekki er hægt að líta svo á að um fasteignaleigu sé að ræða þegar leigð er aðstaða undir söfnunarkassa).
- Umsjón með söfnunarkössum sem verktakar hafa með höndum, t.d. losun peninga, smáviðgerðir og uppgjör.
Seljandi hinnar skattskyldu vöru eða þjónustu skal innheimta virðisaukaskatt svo fremi sem hann hafi samtals skattskylda veltu hærri en 172.300 kr. á ári (miðað við byggingarvísitölu 1. janúar 1991).
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Ólafur Ólafsson.