Dagsetning Tilvísun
11. okt. 1990 145/90
Virðisaukaskattur – tímarit.
Vísað er til bréfs yðar, dags. 22. apríl 1990. Í bréfinu er gerð grein fyrir útgáfu Félags löggiltra endurskoðenda á fagtímariti félagsins, „Áliti“, og óskað álits ríkisskattstjóra á því hvort útgáfan sé skráningarskyld samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Fram kemur að tímaritið er sent félagsmönnum án sérstaks áskriftargjalds. Auk þess er tímaritinu dreift til ýmissa fyrirtækja og stofnana, ásamt gíróseðli til innheimtu áskriftargjalds sem sumir greiða en aðrir ekki. Auglýsingar eru seldar í tímaritinu gegn gjaldi. Þá kemur fram að þessar tekjur standa að jafnaði ekki undir útgáfukostnaði.
Um almenn atriði varðandi útgáfustarfsemi félagasamtaka vísast til meðfylgjandi bréfs ríkisskattstjóra frá 16. mars 1990. Í lið H-2 kemur fram sú almenna regla að varanleg og regluleg útgáfa á vegum félagasamtaka er ekki skráningarskyld nema hagnaður sé af útgáfunni, þ.e. þegar tekjur af áskrift og auglýsingar eru hærri en kostnaður við útgáfu. Þó þarf að taka tillit til aðstæðna í einstökum tilvikum, einkum þegar ritum er dreift til félagsmanna gegn greiðslu félagsgjalds, en án sérstaks endurgjalds að öðru leyti. Skráningarskylda er þá talin vera fyrir hendi þegar ljóst er að um markaðsvöru er að ræða. Útgáfustarfsemin er hins vegar undanþegin skráningarskyldu þegar tilgangur útgáfunnar er fyrst og fremst að fullnægja innri þörf félagsins (fréttir af félagsstarfi o.s.frv.). Við mat þess hvort tiltekin útgáfa sé „markaðsvara“ er m.a. litið til þess hvort atvinnufyrirtæki hafi sambærilega útgáfustarfsemi með höndum, hvort aðrir en félagsmenn séu einnig áskrifendur að ritinu, hversu umfangsmikill þáttur útgáfustarfsemin er í heildarstarfsemi félagsins og – ef félagið er opið almenningi – hvort líklegt þyki að menn gangi í félagið gagngert í því skyni að fá áskrift að ritinu.
Fram kemur í bréfi yðar að tímaritið „Álit“ er selt út fyrir raðir félagsmanna. Innlendar og erlendar fagbækur um það efni sem fyrirferðamest er í tímaritinu, þ.e. reikningshald og endurskoðun, eru til sölu á almennum markaði. Að þessu athuguðu er það álit ríkisskattstjóra að útgáfa Álits, tímarits FLE, sé skráningarskyld starfsemi samkvæmt lögum um virðisaukaskatt.
Um meðferð virðisaukaskatts af útgáfunni vísast til liðar C-1 í bréfi ríkisskattstjóra frá 16. mars 1990.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra
Ólafur Ólafsson.