Dagsetning Tilvísun
22. júlí 1991 317/91
Virðisaukaskattur – útgáfustarfsemi.
Vísað er til bréfs yðar, dags. 9. maí 1991, þar sem leitað er álits ríkiskattstjóra á því hvort félagsblað K sé undanþegið virðisaukaskatti. Fram kemur að félagsblaðinu er dreift án endurgjalds til félagsmanna og ýmissa annarra aðila.
Ríkisskattstjóri hefur nú gefið út leiðbeiningar um virðisaukaskatt af útgáfustarfsemi. Fylgja þær hjálagðar.
Að áliti ríkisskattstjóra getur útgáfa félagsblaðsins ekki talist skráningarskyld starfsemi samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Útgáfa ritsins, sem ekki verður talin í atvinnuskyni eins og það hugtak er notað í leiðbeiningunum, virðist þáttur í almennri starfsemi K og ekki verður séð að sérstök sjónarmið um útgáfustarfsemi félagasamtaka, sem rakin eru í leiðbeiningum ríkisskattstjóra (kafli 2.3, a-liður), eigi við um útgáfuna.
Samkvæmt framansögðu getur ekki komið til endurgreiðslu virðisaukaskatts af útgáfukostnaði þessa rits.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Ólafur Ólafsson.