Dagsetning Tilvísun
22. júlí 1991 310/91
Virðisaukaskattur – útgáfustarfsemi.
Vísað er til bréfs yðar, dags. 29. nóvember 1990, þar sem óskað er leiðbeininga um meðferð virðisaukaskatts vegna útgáfu félagsins á tímaritinum B og F. Í bréfinu kemur fram að F er upplýsinga- og fræðslurit fyrir félagsmenn og kemur að öðru jöfnu út fjórum sinnum á ári, en einu sinni á ári kemur það út í veglegri útgáfu með fag- og fræðslugreinum og heitir þá B. Þá kemur fram að ritunum er dreift til félagsmanna án endurgjalds, auk þess sem það er sent í áskrift til nokkurra bókasafna og nema í bókasafnsfræðum í Háskóla Íslands.
Ríkisskattstjóri hefur gefið út leiðbeiningar um virðisaukaskatt af útgáfustarfsemi. Fylgja þær hjálagðar.
Í kafla 2.3 í leiðbeiningunum er fjallað um útgáfustarfsemi félagasamtaka og vísast til þess sem þar segir um úrlausn þess atriðis hvort félagið sé skráningarskylt vegna útgáfunnar.
Tekið skal fram að það er álit ríkisskattstjóra að séu sölutekjur og tekjur af auglýsingum lægri en útgáfukostnaður geti útgáfa ritanna ekki talist skráningarskyld starfsemi. Byggist þetta á því að útgáfa þeirra virðist þáttur í almennri starfsemi félagsins og sérstök sjónarmið um útgáfustarfsemi félagasamtaka, sem rakin eru í a-lið í kafla 2.3, virðast ekki eiga við um útgáfuna.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Ólafur Ólafsson.