Dagsetning                       Tilvísun
15.02.2006                             07/04

 

Virðisaukaskattur – vörureikningsveð

Ríkisskattstjóri hefur móttekið bréf yðar, dags. 29. mars 2004, þar sem óskað er eftir áliti ríkisskattstjóra á meðferð virðisaukaskatts þegar skattskyldur aðili veðsetur andvirði útgefinna og greiddra reikninga. Í bréfinu segir:
„Undirritaður er skiptastjóri í þrotabúi Ferskra afurða ehf. kt. 590500-2590, en félagið var tekið til gjaldþrotaskipta þann 18. nóvember 2003.
Einn kröfuhafa í þrotabúinu hefur haft uppi mótmæli gegn kröfu Sýslumannsins á Blönduósi vegna ógreidds virðisaukaskatts. Er það gert á þeim grundvelli að reikningar vegna sölu afurða hafi verið veðsettir og veðhafinn, KB banki hafi haldið eftir öllu andvirði útgefinna og greiddra reikninga, þ.m.t. álögðum virðisaukaskatti. Ferskar afurðir hafi aldrei haft vörslur hins álagða virðisaukaskatts og því hafi þeim ekki verið kleift að standa skil á honum.

Af þessu tilefni vill undirritaður óska eftir áliti virðulegs ríkisskattstjóra á eftirfarandi:

Þegar reikningar eru veðsettir lánardrottni, getur sú veðsetning náð til álagðs virðisaukaskatts?

Þegar veðsettir reikningar eru strax við útgáfu veðsettir veðhafa, hverjum ber að standa skil á virðisaukaskatti?[…]“

Til svars við fyrirspurn yðar skal eftirfarandi tekið fram:
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt (vsk-laga), skal greiða í ríkissjóð virðisaukaskatt af viðskiptum innan lands á öllum stigum, svo og af innflutningi vöru og þjónustu, eins og nánar er ákveðið í lögum þessum. Í 3. gr. vsk-laga er kveðið á um virðisaukaskattsskyldu bæði manna og lögpersóna. Í 1. tölul. 1. mgr. er sett fram sú meginregla að skylda til að innheimta virðisaukasskatt og standa skil á honum í ríkissjóð hvíli á þeim sem í atvinnuskyni selja vörur eða inna af hendi þjónustu. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laganna ber hverjum þeim sem fellur undir virðisaukaskattsskyldu skv. 3. gr. að tilkynna um starfsemi sína til skráningar eigi síðar en átta dögum áður en hún hefst. Skattskyldir aðilar skulu eftir lok hvers uppgjörstímabils greiða ótilkvaddir virðisaukaskatt þann sem þeim ber að standa skil á samkvæmt vsk-lögum, sbr. 24. gr. Skattskyldir aðilar skv. 3. gr. skulu greiða í ríkissjóð mismun útskatts (virðisaukaskattur sem fellur á skattskylda sölu eða afhendingu) og innskatts (virðisaukaskattur sem fellur á kaup skattaðila á skattskyldum vörum og þjónustu til nota í rekstrinum, sbr. þó 16. gr. vsk-laga) hvers uppgjörstímabils, sbr. 1. mgr. 15. gr. vsk-laga. Samkvæmt 13. gr. laganna telst til skattskyldrar veltu á hverju uppgjörstímabili heildarskattverð allra vara sem afhentar hafa verið, svo og heildarskattverð allrar skattskyldrar vinnu og þjónustu sem innt hefur verið af hendi á tímabilinu. Í 27. gr. laganna segir að sé virðisaukaskattur ekki greiddur á tilskildum tíma skuli aðili sæta álagi til viðbótar skatti samkvæmt virðisaukaskattsskýrslu eða til viðbótar þeim skatti sem honum bar að standa skil á. Í 28. gr. segir ennfremur að ef virðisaukaskattur er ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga þá skuli greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Virðisaukaskattur, álag, dráttarvextir og kröfur um endurheimtu of hárra endurgreiðslna njóta lögtaksréttar.

Samkvæmt 47. gr. laga nr. 75/1997, um samningsveð, er rekstraraðila heimilt að veðsetja þær almennu kröfur sem hann á eða fær í rekstri sínum eða aðgreindum hluta rekstrarins. Að áliti ríkisskattstjóra koma ákvæði virðisaukaskattslaga ekki í veg fyrir að veðsala sé heimilt að setja að veði heildarfjárhæð útistandandi kröfu samkvæmt vörureikningi. Veðsetningin breytir því hins vegar ekki að virðisaukaskattur er vörsluskattur sem ber að skila í ríkissjóð. Skilaskyldan hvílir ætíð á skattaðila sjálfum, sbr. ofangreinda umfjöllun, og ræður afhending hins selda því til hvaða uppgjörstímabils veltan telst. Ekki skiptir þar máli hvort hið selda hefur verið greitt, hvenær eða hvernig það fæst greitt eða hvort útgefinn sölureikningur hefur verið veðsettur.

 

Virðingarfyllst

f. h. ríkisskattstjóra

Guðrún Þorleifsdóttir

Guðlaug M Valdemarsdóttir