Dagsetning                       Tilvísun
15. nóvember 1994                            574/93

 

Vísað er til bréfs yðar, dags. 22. september 1993, þar sem óskað er eftir áliti ríkisskattstjóra á því hvort stofnuninni beri að innheimta og standa skil á virðisaukaskatti vegna skylduskoðana fjarskiptabúnaðar í skipum og bátum. Í bréfi yðar kemur fram að um er að ræða vinnu og akstur sem Póst- og símamálastofnunin lætur Fjarskiptaeftirliti ríkisins í té og eru reikningarnir stílaðir á Fjarskiptaeftirlitið.

Til svars bréfi yðar skal tekið fram að ríki, bæjar- og sveitarfélögum og stofnunum eða fyrirtækjum þeirra er skylt að innheimta virðisaukaskatt og standa skil á honum í ríkissjóð, að svo miklu leyti sem þessir aðilar selja vörur eða skattskylda þjónustu í samkeppni við atvinnufyrirtæki, sbr. 4. tl l. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Að áliti ríkisskattstjóra ber að skilja ákvæði þetta þannig að gjaldtaka ríkisstofnana vegna starfsemi sem þær hafa með höndum í krafti opinbers valds hafi ekki í för með sér skyldu til að innheimta virðisaukaskatt, enda er þá ekki á valdi annars en viðkomandi stofnunar að veita sambærilega þjónustu með sömu réttaráhrifum. Jafnframt felst í ákvæðinu að þjónusta sem opinber stofnun veitir án þess að henni sé það skylt skv. lögum er ekki skattskyld nema sambærileg þjónusta sé einnig veitt af atvinnufyrirtækjum.

Í atvinnulífinu er að finna fleiri aðila en Póst- og símamálastofnunina sem hafa þá tækniþekkingu og aðstöðu sem Fjarskiptaeftirlitið gerir kröfu um að þjónustuaðilinn hafi yfir að ráða til þess að geta sinnt skylduskoðun fjarskiptabúnaðar í skipum og bátum. Þjónusta sú er hér um ræðir gæti því verið veitt af öðrum aðilum en Póst- og símamálastofnuninni og verður hún þ.a.l. að teljast vera veitt í samkeppni við þá aðila atvinnulífsins.

Hvorki 5. tl. 12. gr. virðisaukaskattslaga, um að vistir, eldsneyti, tæki og annar búnaður sem afhentur er til nota um borð í millilandaförum svo og sú þjónusta sem veitt er slíkum förum teljist ekki til skattskyldrar veltu, né 7. tl. 12. gr. sömu laga, sem undanþiggur skipasmíði og viðgerðar- og viðhaldsvinnu við skip og loftför og fastan útbúnað þeirra frá því að teljast til skattskyldrar veltu, eiga við um þá vinnu sem hér er um að ræða.

Samkvæmt framansögðu telur ríkisskattstjóri að umrædd þjónusta Póst- og símamálastofnunar við Fjarskiptaeftirlit ríkisins sé virðisaukaskattsskyld.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Árni Harðarson