Dagsetning                       Tilvísun
20. mars 1995                            675/95

 

Vísað er til samtala við yður og í framhaldi af því bréfs yðar dags. 4. nóvember 1994, þar sem leitað er álits ríkisskattstjóra á því, hvernig virðisaukaskattsskyldu B, til heimilis að S, Reykjavík, er háttað í sambandi við framkvæmdir á ótilgreindri lóð R .

Eftirfarandi kemur fram í meðfylgjandi minnisblaði og bráðabirgðaleigusamningi:

„Byggingarlóðin verður eign R, B. er leigutaki lóðarinnar.

Leigutaki ber kostnað af gerð eftirtalinna mannvirkja á lóðinni:

Landgerð.
Skolp- og regnvatnslagnir ásamt vatnslögnum.
Gatnagerð.
Hafnargarðar og bátabraut.
Hafnarkantur.
Dýpkun hafnar.

R eignast ofangreind mannvirki um leið og gerð eru.
Gatnagerðargjöld og holræsagjöld vegna bygginga á svæðinu falla niður, svo og lóðarleiga í 40 ár.

R annast rafmagns- og hitalagnir innan lóðarinnar, B. mun greiða viðeigandi heimtaugagjöld.

B. kostar gerð bílastæða og frágang opinna svæða.“

Svo virðist sem B. muni innheimta gatnagerðargjöld og heimtaugargjöld af íbúðar- og atvinnuhúsnæði til byggingaraðila, ásamt tilheyrandi bílastæðum, að undanskildum bílastæðum sem tengjast höfn. Ennfremur virðist B koma til með að innheimta lóðarleigu vegna bygginganna í 40 ár, skv. gjaldskrá R.

Rekstur hafnarinnar og innheimta leigu vegna hafnaraðstöðu virðist samkvæmt framlögðum minnisblaði vera á vegum B. í 40 ár.

Allir skattar og opinber gjöld til opinberra þarfa, sem lögð verða á leigulóð greiðast af leigutaka.

Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar er það álit ríkisskattstjóra að hér sé um að ræða verktakasamband á milli B. og R. Verktakagreiðslurnar     eru í formi niðurfellingar á gjöldum af hálfu R samfara heimild til B að innheimta viðkomandi gjöld af kaupendum og notendum umræddra mannvirkja. Gegn því að gefa eftir gjöldin gagnvart B, verður R eigandi allra mannvirkja strax og þau verða til. Verður því að álykta sem svo, að umrædd eftirgjöf á gjöldum sé í raun endurgjald fyrir verkið.

B. telst því vera í virðisaukaskattsskyldri starfsemi og ber því að skila virðisaukaskatti af áðurnefndum framkvæmdum skv. almennum ákvæðum virðisaukaskattslaga og reglugerðum settum skv. þeim.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Vala Valtýsdóttir