Dagsetning                       Tilvísun
14. febrúar 1995                            667/95

 

Yfirtaka L á rekstri X

Vísað er til bréfs yðar dags. 18. nóv. 1994 þar sem óskað er eftir formlegri umsögn ríkisskattstjóra á nokkrum álitamálum sem upp hafa komið vegna yfirtöku L á rekstri X.

Engar fyrirspurnir eru í bréfinu, heldur óskað eftir formlegri umsögn um eftirfarandi niðurstöður sem þér hafið komist að:

  1. Sala allra fastafjármuna X. til L fellur ekki undir skattskylda veltu og er í því sambandi vísað til 4. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
  1. Við sölu allra fastafjármuna X. til L verður til nýr fyrningargrunnur umræddra eigna í bankanum. Eignir skulu endurmetnar hjá X. á söluári en ekki fyrndar, en full fyrning reiknast hjá L á kaupári. Er þetta í samræmi við 33., 34. og 36. gr. laga nr. 75/1981.
  1. Eignaleigustarfsemi sem X. hefur rekið og er virðisaukaskattsskyld starfsemi, verður það áfram eftir yfirtöku L. Nauðsynlegt er að reksturinn verði aðskilinn frá öðrum rekstri bankans. Þannig verður eignaleigustarfsemin rekin sem sérstök deild innan bankans sem hefur sérstakt virðisaukaskattsnúmer.
  1. L kaupir viðskiptakröfur af X. sem að hluta til eru útistandandi leigugjöld með virðisaukaskatti. Sá virðisaukaskattur sem hér um ræðir hefur X. skilað í ríkissjóð. Þegar ljóst er að ákveðin viðskiptakrafa er sannanlega töpuð á X. endurkröfurétt á hendur ríkissjóði vegna þess virðisaukaskatts sem skilað hefur verið. Á sama hátt mun L eiga endurkröfurétt á hendur ríkissjóði vegna virðisaukaskatts á töpuðum kröfum og gildir það bæði um kröfur sem til verða í rekstri L og um kröfur sem til hafa orðið í X. og L hefur yfirtekið. Þetta gildir þrátt fyrir það að L reki sína eignaleigustarfsemi með öðru virðisaukaskattsnúmeri heldur en X., þar sem ekki er einungis um kröfukaup bankans að ræða heldur jafnframt yfirtöku á rekstri þeirrar starfsemi sem X. rak áður.

Virðisaukaskattsskrifstofa ríkisskattstjóra staðfestir skilning yðar á meðferð liða nr. 1, 3 og 4 hér að framan.

Varðandi virðisaukaskatt þar sem um er að ræða eignayfirfærslu á rekstri skv. 4. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988 vill ríkisskattstjóri vekja athygli yðar á því að við slíka sölu skal seljandi tilkynna skattyfirvöldum um eigendaskipti og söluandvirði eigi síðar en átta dögum eftir að eignayfirfærslan fór fram.

Varðandi fyrningu og fyrningargrunn vegna sölu ( liður 2) hefur virðisaukaskatts- skrifstofa haft samband við tekjuskattsskrifstofu embættisins og að hennar áliti er eðlilegt að L yfirtaki fyrnanlegar eignir X. á bókfærðu verði, þannig að fyrningarstofn þeirra hjá L verði hinn sami og verið hefði hjá X.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir